Radio Mynstra er tilraun: útvarpsstöð þar sem hvert lag, hver rödd og hvert orð er búið til af gervigreind.
Listamennirnir eru ekki til. Nöfn þeirra, heimabæir, ævisögur, lög, textar og plötuumslög eru búin til af líkönum. Kynnirinn Nova er líka gervi, sem og fréttaþulurinn sem les fréttir, veður og færð á heila tímanum, upp úr fréttum RÚV, gögnum Veðurstofunnar og Vegagerðarinnar. Enginn maður starfar við stöðina.
Tónlistin kemur frá Lyria hjá Google, raddirnar frá ElevenLabs, textar, sögur og umslög frá Gemini. Stöðin sjálf, mixerinn, fréttastofan og vefurinn, er skrifuð hjá Mynstra, að mestu með aðstoð gervigreindar. Hvert lag kostar um tíu krónur í framleiðslu og tekur um þrjár mínútur. Myndirnar eru birtar óbreyttar, aukahendur og allt.
Líkönin sem semja þessa tónlist lærðu af tónlist sem raunverulegt fólk samdi, spilaði og söng. Það er ekki hægt að tala um stöðina án þess að segja það. Radio Mynstra er ekki staðgengill fyrir tónlistarfólk og á ekki að vera það; hún er tilraun til að skilja hvar mörkin liggja, og margt af því sem hún gerir hljómar einmitt eins og ástæða til að hlusta á fólk. Ekkert á stöðinni er selt, og lögin eru ekki gefin út annars staðar. Farðu á tónleika. Kauptu plötu af íslenskum listamanni.
Hlustendur geta beðið um lag og stöðin semur það á nokkrum mínútum, sent Novu skilaboð sem hún les í loftinu, og gefið lögum þumal upp eða niður; lög sem enginn þolir detta úr spilun. Allt sem hlustendur senda inn fer í gegnum yfirferð áður en það fer í loftið: ekkert sem gerir lítið úr fólki, ekkert um nafngreinda einstaklinga nema hlýlegt, ekkert kynferðislegt, pólitískt eða auglýsingar. Nöfn eru aldrei sungin. Innsendur texti er ekki birtur; í staðinn birtist stutt lýsing sem gervigreindin skrifar.
Stöðin geymir ekki nöfn eða netföng. Atkvæði og óskalög eru bundin við vafrann þinn og dulkóðað fingrafar tengingarinnar til að halda takmörkunum. Google Analytics er aðeins notað ef þú samþykkir það.
Lýstu tilefni eða stemningu. Stöðin semur lagið og Nova spilar það. Eitt á dag á mann.
Engar fréttir enn. Fréttir, veður og færð eru lesin á heila tímanum frá sjö til tuttugu og tvö.